Namfus

Persónuverndarstefna Námfúss

Síðast uppfært 25. október 2026

1. Um Námfús og þessa stefnu

Námfús ehf., kt. 410702-4440, Höfðabakka 9b, 110 Reykjavík, rekur skólakerfið Námfús fyrir leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili og sveitarfélög. Þessi stefna lýsir því hvernig farið er með persónuupplýsingar í kerfinu, í snjallforritunum og á vefnum namfus.is.

Hlutverk Námfúss fer eftir því um hvaða gögn er að ræða:

  • Gögn í skólakerfinu um nemendur, forráðamenn og starfsfólk. Skólinn eða sveitarfélagið er ábyrgðaraðili og ákveður hvaða gögn eru skráð og í hvaða tilgangi. Námfús er vinnsluaðili og vinnur gögnin aðeins samkvæmt skriflegum vinnslusamningi við hvern skóla eða sveitarfélag (28. gr. persónuverndarreglugerðarinnar).
  • Gögn um viðskiptavini og gesti vefsins, til dæmis tengiliði skóla, fyrirspurnir og tæknilegar upplýsingar við heimsóknir. Þá er Námfús ábyrgðaraðili.

Foreldri sem vill vita hvað skóli barnsins skráir, eða nota réttindi sín, snýr sér fyrst til skólans eða sveitarfélagsins. Námfús aðstoðar skólann við að svara (sjá 6. kafla).

2. Hvaða upplýsingar eru unnar

Skólinn ákveður hvað er skráð og hvaða einingar kerfisins eru í notkun, svo listinn hjá einstaka skóla getur verið styttri.

HverjirUpplýsingarHvaðan þær koma
Nemendur og leikskólabörnNafn, kennitala, lögheimili, bekkur eða deild, stundaskrá, mæting og fjarvistir, námsmat og umsagnir, verkefni, samskipti við skóla og myndir ef skólinn notar þærSkólinn, Nemendagrunnur og Þjóðskrá
ForráðamennNafn, kennitala, netfang, símanúmer, tengsl við barn og forsjá, skilaboð og fjarvistatilkynningarSkólinn, Nemendagrunnur og forráðamaðurinn sjálfur
StarfsfólkNafn, kennitala, netfang, símanúmer, hlutverk, kennsla og stundaskráSkólinn eða sveitarfélagið
Allir notendurInnskráningar, aðgerðaskrá (hver breytti hverju) og aðgangsskrá (hver skoðaði hvað)Kerfið sjálft
Tengiliðir viðskiptavina og gestir vefsinsNafn, netfang, skóli og efni fyrirspurnar; tæknilegar upplýsingar við heimsóknViðkomandi sjálfur

Viðkvæmar upplýsingar. Skólinn getur skráð upplýsingar um stuðning, sérþarfir eða heilsu nemanda, til dæmis einstaklingsnámskrá, úrræði eða ofnæmi. Aðgangur að þeim er þrengri og hver uppfletting er skráð.

3. Tilgangur og heimild

Upplýsingar í skólakerfinu eru unnar til að skólinn geti sinnt lagaskyldum sínum og daglegu starfi. Þar undir fellur skráning nemenda, stundaskrár, mæting, námsmat, samskipti við heimili og skýrslur til sveitarfélags. Heimildin er skólans sem ábyrgðaraðila, oftast lagaskylda eða verkefni í þágu almennings samkvæmt lögum um grunnskóla og leikskóla (c- og e-liður 1. mgr. 6. gr.). Námfús notar gögnin ekki í eigin tilgangi, selur þau ekki og notar þau ekki til markaðssetningar.

Upplýsingar sem Námfús ber ábyrgð á sjálft eru unnar svona:

TilgangurHeimild
Samningar og samskipti við skóla og sveitarfélögSamningur (b-liður 1. mgr. 6. gr.)
Svar við fyrirspurnum á vef eða í tölvupóstiSamningur eða undirbúningur hans (b-liður)
Rekstur og öryggi vefs og kerfis, þ.m.t. aðgerða- og aðgangsskrárLögmætir hagsmunir (f-liður)
Bókhald og reikningagerðLagaskylda (c-liður)

4. Hýsing, undirvinnsluaðilar og miðlun

Kerfið, gagnagrunnurinn, skrár og afrit eru hýst hjá Open Telekom Cloud í Þýskalandi, innan EES. Námfús miðlar ekki persónuupplýsingum til annarra en þeirra undirvinnsluaðila sem taldir eru upp á lista Námfúss yfir undirvinnsluaðila, nema lagaskylda krefjist þess.

Listinn, með hlutverki og staðsetningu hvers aðila, er í viðauka neðst á þessari síðu. Þar eru líka taldar upp þjónustur fyrir rafrænar undirskriftir, sem skólar tengja með eigin aðgangi.

Gervigreind. Gervigreindarlausnir eru valkvæðar og ábyrgðaraðili ræður hvort þær eru virkar. Kerfið sendir hvorki nafn, kennitölu, netfang, símanúmer né mynd nemanda, heldur nafnlaust auðkenni. Texti sem starfsfólk skrifar sjálft er sendur eins og hann er skrifaður, svo það á ekki að setja persónuupplýsingar í hann. Í framburðarmati ÍSAT-einingarinnar er hljóðupptaka nemanda send til OpenAI til umritunar. Samkvæmt skilmálum OpenAI eru gögnin ekki notuð til þjálfunar. Gervigreind tekur engar ákvarðanir um nemendur.

Skólar og sveitarfélög fá tilkynningu fyrir fram um nýja undirvinnsluaðila og geta andmælt.

5. Öryggi og varðveisla

Gögn hvers skóla eru aðskilin frá gögnum annarra skóla, og hver notandi sér aðeins það sem hlutverk hans leyfir. Kennari sér þá nemendur sem hann kennir, forráðamaður sín eigin börn og nemandi eigin upplýsingar. Heimildir eru athugaðar á netþjóni við hverja aðgerð.

  • Samskipti eru dulkóðuð (HTTPS) og afrit eru dulkóðuð.
  • Hver breyting á persónuupplýsingum og hver uppfletting í þeim er skráð á nafngreindan notanda.
  • Öryggisstjórnun fylgir upplýsingaöryggisstjórnkerfi sem byggir á ISO/IEC 27001.
  • Verði öryggisbrestur er skóla eða sveitarfélagi tilkynnt án ótilhlýðilegrar tafar, svo það geti tilkynnt Persónuvernd innan 72 klst.

Varðveisla. Gögn í skólakerfinu eru varðveitt eftir ákvörðun skólans og skyldum hans samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014. Þegar samningi lýkur skilar Námfús gögnunum til skólans eða eyðir þeim, eftir því sem vinnslusamningur segir til um. Gögnum sem Námfús ber ábyrgð á sjálft er eytt þegar tilgangi vinnslunnar er náð, nema lög krefjist lengri varðveislu, til dæmis bókhaldslög.

6. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar, þær takmarkaðar eða þeim eytt, fá þær afhentar á tölvutæku formi og andmæla vinnslu (15.–21. gr.). Forráðamenn fara með þessi réttindi fyrir hönd barna sinna. Það kostar ekkert að nota þá.

Erindi varðarHafa samband við
Upplýsingar sem skóli eða leikskóli skráir um barn, forráðamann eða starfsmannSkólann eða persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins
Vef Námfúss, fyrirspurnir eða viðskiptasambandPersónuverndarfulltrúa Námfúss, personuvernd@namfus.is
Kvörtun ef þú telur ranglega farið með upplýsingarPersónuvernd, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík

Berist Námfúsi beiðni um skólagögn er hún framsend til skólans, sem tekur ákvörðun. Námfús aðstoðar skólann við að taka gögnin saman eða eyða þeim.

7. Vafrakökur, breytingar og samband

Vafrakökur. Skólakerfið notar aðeins nauðsynlegar vafrakökur, til dæmis til að halda notanda innskráðum. Vefurinn namfus.is notar engar greiningar- eða auglýsingakökur. Vefurinn er hýstur hjá Vercel, sem skráir tæknilegar upplýsingar eins og IP-tölu í stuttan tíma vegna reksturs og öryggis.

Breytingar. Stefnan er endurskoðuð þegar vinnslan breytist og að minnsta kosti árlega. Nýjasta útgáfan er alltaf á namfus.is/privacy, með dagsetningu síðustu breytingar. Skólum er tilkynnt um verulegar breytingar.

Samband. Fyrirspurnir um upplýsingar sem skóli eða leikskóli skráir fara til skólans eða sveitarfélagsins (sjá 6. kafla). Námfús svarar aðeins fyrir eigin vinnslu, sem er ytri vefurinn namfus.is og samskipti við viðskiptavini: Námfús ehf., Höfðabakka 9b, 110 Reykjavík. Dótturfélag í Þýskalandi: Namfus Deutschland GmbH, Königstraße 5, Stuttgart. Persónuverndarfulltrúi: Oddur Hafsteinsson, personuvernd@namfus.is. Almenn aðstoð: support@namfus.is.

Viðauki: Undirvinnsluaðilar Námfúss

Síðast uppfært 25. október 2026

Námfús notar þessa undirvinnsluaðila við rekstur skólakerfisins. Skólar og sveitarfélög fá tilkynningu fyrir fram um nýja aðila og geta andmælt.

UndirvinnsluaðiliHlutverkStaðsetningAthugasemd
T-Systems International GmbH (Open Telekom Cloud)Hýsing, rekstur, afritun og skráageymslaÞýskaland (EES)ISO 27001, 27017 og 27018
BirdTölvupóstur og SMSHolland (EES)Aðeins efni sem viðtakandi má sjá
Expo (EAS)Tilkynningar í síma, áfram um Apple og GoogleBandaríkinAuðkenni og texti tilkynningar; staðlaðir samningsskilmálar
Microsoft (Azure Speech)Tal í ÍSAT-einingu (íslenska sem annað mál)Þýskaland (EES)Aðeins ef skólinn notar eininguna
OpenAI, L.L.C.Valkvæðar gervigreindarlausnirBandaríkinNöfn og auðkenni nemenda ekki send; hljóðupptaka í framburðarmati; staðlaðir samningsskilmálar

Rafrænar undirskriftir

Skóli sem notar rafrænar undirskriftir tengir eigin aðgang hjá einni af þessum þjónustum. Samningurinn er milli skólans og þjónustunnar, og Námfús sendir skjöl til undirritunar með aðgangi skólans. Þjónusturnar eru því ekki undirvinnsluaðilar Námfúss.

ÞjónustaStaðsetning
SignetÍsland (EES)
DokobitLitháen (EES)
TaktikalÍsland (EES)